Í sveitaferð að skoða lömbin.
Töffari!
Image
IKEA
Image
Loksins, loksins…nýjar myndir.
Það kom að því. Fullt af nýjum myndum frá 2012 fyrir vini og vandamenn nær og fjær. Sérstaklega þó þá sem eru fjær. Auðvitað bara brot af því besta, annars myndu myndirnar hlaupa á þúsundum.
Smellið á “Stúlkumyndir” hér að ofan til að skoða myndirnar.
Njótið.
Skríð
Hrönn vex eins og arfi. Hún hefur verið afar mikill bröltari síðustu vikur. Hún hendir sér á magann og sest aftur upp og veit fátt skemmtilegra en að standa. Áður en við fórum í páskaferðina austur á firði var nokkuð ljóst að skriðið væri ekki langt undan. Það reyndist rétt en fyrstu almennilegu skriðsporin voru tekin hér á stofugólfinu í Sævarenda 7, Stöðvarfirði daginn eftir að við komum.
Hún hefur sjálfsagt verið að íhuga það í bílnum á leiðinni hvernig hún gæti nú tæklað það að skríða.
Það er bara verst með þessar flísar og parket sem er í flestum húsum í dag, sleipt að skríða á þessu.
Við tókum myndband af skonsunni að skríða.
Hvað er annars að frétta?
Allir hressir. Kjartan duglegur í vinnunni. Lovísa dugleg að koma sér hjá því að vinna í MS-ritgerðinni. Við erum búin að bóka flug til USA í vor að heimsækja Lísbeti svo Hrönn fer í fyrsta sinn í flugvél þá og það í átta tíma flug. Krossum fingur að það gangi vel. Í útlandinu viljum við sjá fullt af dýrum og fuglum, stóra steina og gömul kúrekastígvél. Helst líka læra að snara nautgripi á ferð. Við keyptum okkur ekki páskaegg. Það er bara gott fyrir bumbuna að sleppa því. (En það bíður reyndar eitt nr. 7 eftir Kjartani í vinnunni) Við ætlum bara að velja okkur bara málshátt á morgun. Einhvern voðalega sniðugan. Við fórum á tónleika í frystihúsinu á Stöðvarfirði á þriðjudaginn. Það var gaman.
Man ekki meir.
Bæ. Lovísa, Kjartan og Hrönn.
Dýrin mín
Klipping
Vídjóið í seinustu færslu birtist víst bara rétt í Safari vafranum. Í öðrum vöfrum birtist það ýmist á hvolfi eða bara ekki. Úps. Núna erum við samt komin með glimrandi, nýja myndbandsupptökuvél frá Canon og förum fljótlega að setja inn einhverjar fleiri hreyfimyndir.
Um seinustu helgi fékk Hrönn fyrstu klippinguna. Hárið var farið að ná niður að augum og þá fannst Mömmu og Ömmu nóg komið. Skærin voru sótt og nokkrir sentímetrar klipptir af.
Hókus Pókus
Við gáfum Hrönn nýjan og fínan Hókus Pókus stól í jólagjöf. Hérna er hún að borða skúnk.





